Útflutningsráð til samstarfs við tölvuleikjaframleiðendur
Útflutningsráð Íslands og samtök tölvuleikjaframleiðenda, IGI (Icelandic Gaming Industry), hafa tekið höndum saman um að efla markaðsstarf fyrirtækja innan vébanda IGI og auka þekkingu þeirra á útflutningi, og var samstarfssamningur þar að lútandi undirritaður í dag.
Samtökin, IGI, og Útflutningsráð undirbúa nú þátttöku í vörusýningunni Nordic Game 2010 sem verður haldin í Málmey í Svíþjóð dagana 27.-29. apríl. Nordic Game er sýning og ráðstefna tileinkuð tölvuleikjaiðnaðinum á Norðurlöndunum og er hluti af leikjaverkefni undir Norræna ráðherraráðinu.
Tölvuleikjaiðnaðurinn hefur vaxið hratt á mjög stuttum tíma og segja forsvarsmenn samtakanna að stöðugleiki og öflug starfsemi einkenni fyrirtækin í dag. Þá sé mikils virði að fyrirtæki í tölvuleikjaiðnaði séu orðin sýnilegri enda um að ræða fjölbreytta og framsækna útflutningsgrein.
Samtökin hafa með aðstoð Útflutningsráðs ráðist í endurprentun á kynningarefni um IGI sem birtist nýverið í tímaritinu EDGE, en það er eitt víðlesnasta tímaritið á þessu sviði.
Undir samstarfssamninginn rituðu Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs og Erla Bjarney Árnadóttir, formaður IGI.

Inga Hlín Pálsdóttir, Jón Ásbergsson, Erla Bjarney Árnadóttir, Örn Haraldsson og Berglind Steindórsdóttir





