Íslensk hönnun og arkitektúr í kastljósinu í Kaupmannahöfn
Íslensk samtímahönnun – húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr nefnist sýning sem opnuð hefur verið í hinni virtu hönnunarmiðstöð Dana í Kaupmannahöfn, Danmarks Design Center, og standa mun yfir næstu tvo mánuði. Sýningin er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Danmarks Design Center og er styrkt af Útflutningsráði Íslands, utanríkisráðuneyti, iðnaðarráðuneyti, menntamálaráðuneyti, Icelandair, Visit Reykjavík og sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk hönnunarsýning er sett upp í Danmarks Design Center og er áhuginn fyrir henni mikill, að sögn Mariu Elskær sýningarstjóra safnsins. Nafn Íslands og íslensk hönnun munu blasa við vegfarendum sem leið eiga um Ráðhústorgið næstu tvo mánuði, því 14 metra háum kynningarborða hefur verið komið fyrir utan á húsakynnum Danmarks Design Center.
Að mati Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar Íslands, er það mikill heiður bæði fyrir íslenska hönnun og arkitektúr að bjóðast að sýna í Danmarks Design Center og vinna verkefnið í samstarfi við hina dönsku aðila. „Þeir hafa áratuga reynslu af því að koma danskri hönnun á framfæri og hafa miklu að miðla til okkar. Aðgangur að tengslaneti þeirra og samstarfsaðilum er ómetanlegur og opnar tækifæri fyrir íslenska hönnun á alþjóðamarkaði,“ segir Halla.
Sýningin í Kaupmannahöfn er farandsýning og hefur að geyma verk um 20 íslenskra hönnuða / hönnunarteyma sem eru valin með það í huga að eiga erindi ytra til frekari kynningar, sölu eða framleiðslu.
Nánari upplýsingar veitir Gréta Hlöðversdóttir, verkefnisstjóri sýningarinnar, s. 898 7333, greta@icelanddesign.is. Upplýsingar um starfsemi Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Danmarks Design Center er að finna á www.honnunarmidstod.is og www.ddc.dk.
Myndir frá opnun sýningarinnar föstudaginn 26. febrúar.












