Ísland nýr áfangastaður fyrir Indverja
Ísland vakti mikla athygli sem nýr áfangastaður fyrir Indverja á ferðasýningunni Satte í Nýju-Delí í janúarlok. Fjögur íslensk fyrirtæki í ferðaþjónustu tóku þátt í sýningunni undir hatti Útflutningsráðs Íslands, í samvinnu við Ferðamálastofu.
Satte er ein stærsta sýning á sviði ferðamála á Indlandi og er þetta í fyrsta sinn sem Útflutningsráð skipuleggur þátttöku Íslendinga í henni.
Fyrirtækin sem kynntu þjónustu sína á Satte eru Iceland Travel, Hótel Glymur, Icelandair og Álafoss Productions. „Sendiráð Íslands í Nýju-Delí kom að undirbúningi sýningarinnar og sá m.a. um, í samvinnu við starfsmenn Icelandair þar í borg, að bóka fundi með helstu ferðaskrifstofum á svæðinu,“ segir Berglind Steindórsdóttir hjá Útflutningsráði. „Sýningin gekk mjög vel og mættu íslensku fyrirtækin vel undirbúin til leiks. Þau eru ánægð með útkomuna en tækifærin á indverska markaðinum felast einkum í stuttum ferðum til Íslands, í tengslum við Evrópuferðir. Næsta skref hjá íslensku fyrirtækjunum er að vinna enn frekar að kynningu á Íslandi á meðal þeirra aðila sem sýnu mestan áhuga á samstarfi.“
Ferðasýningin Satte laðar árlega að sér mikinn fjölda fagaðila og að þessu sinni voru sýnendur 445 talsins, frá 18 löndum.









