Upplýst Ísland í göngugötu Mílanóborgar
Glæsilegar ljósmyndir frá Íslandi prýða nú eina fjölförnustu göngugötu Mílanóborgar, Corso Vittorio Emanuele, vegfarendum til ánægju og yndisauka. Ljósmyndasýningin var opnuð á Íslandsdegi í Mílanó sl. föstudag, af þeim Kristjáni L. Möller samgönguráðherra og Massimiliano Orsatti, yfirmanni markaðs- og ferðamála borgarinnar.
Uppsetning sýningarinnar var studd af Útflutningsráði, Nýsköpunarmiðstöð, Ferðamálastofu, Landsvirkjun og Icelandair en starfsmenn borgarinnar og fulltrúar frá verslunarráði Mílanó lögðu fram aðstoð.
Sigurður Þorsteinsson hönnuður hafði veg og vanda af vali Íslandsmyndanna en flestar þeirra eru eftir hina frægu ítölsku ljósmyndara Marco Stoppato og Amanda Ronzoni. Um göngugötuna fara allt að 1 milljón manna þessar tæplega tvær vikur sem sýningin stendur, þannig að margir eiga eftir að njóta ljósmyndanna frá Íslandi sem ásamt skýringartexta og fróðleik munu án efa hvetja til Íslandsheimsókna. Myndunum, 30 stórum ásamt fjölda smærri, er komið fyrir á 15 stórum stöndum sem útbúnir eru sólarsellum, þannig að myndirnar eru upplýstar að næturlagi.
Utanríkisráðuneytið stóð fyrir fjölmennu málþing á Íslandsdegi í Mílanó, þar sem viðskipti landanna voru rædd og Ítölum kynntir fjárfestingarkostir sem og það helsta á sviði orkumála og nýsköpunar hér á landi. Sérstök áhersla var lögð á ferðamál og kynntu tíu ferðaþjónustufyrirtæki starfsemi sína og ræddu við viðskiptaaðila. Voru þau hluti af sendinefnd á vegum Útflutningsráðs en jafnframt voru fyrirtæki úr fisksölu, textíliðnaði og endurvinnslu með í för.
Alls tóku fulltrúar 23 fyrirtækja, stofnana og samtaka þátt í þessum þjóðardegi en hann er sá fyrsti í röð margra sem Mílanóborg hefur boðað til í framhaldi af því að borginni hefur verið falið að halda heimssýninguna 2015.





