Lokaundirbúningur ÚH-20 í London
Þátttakendur í ÚH 20-verkefni Útflutningsráðs eru um þessar mundir staddir í London við þjálfun í sölu og samningatækni.
Hermann Ottósson, sem fer fyrir hópnum, segir vinnufundinn ytra afar mikilvægan hlekk í þeirri fræðslu og þjálfun sem þátttakendur hafa notið í vetur. „Þetta er lokaundirbúningurinn fyrir viðskiptafundi fyrirtækjanna á næstunni en vönduð og öguð vinnubrögð við sölukynningar eru oft lykillinn að því að samningar náist.“
Þjálfunin fer fram í húsakynnum sendiráðs Íslands í London en leiðsögn er í höndum Chris Bowermann frá Tripo Consultans. „Því má bæta við að svo kann að vera að jákvæð orka hinna áhugasömu þátttakenda í ÚH-verkefninu hafi haft þau áhrif að kominn er skriður á viðræður um lausn Icesave-deilunnar, en við höfum skiptst á við samninganefndina að nota fundarherbergið í sendiráðinu.“

Þátttakendur í verkefni Útflutningsráðs, ÚH-20, í London ásamt Chris Bowermann frá Tripo Consultans.





