Þjónusta
Íslandsstofa veitir íslenskum fyrirtækjum faglega aðstoð við kynningu og sölu á vörum, þjónustu og þekkingu erlendis.
Á vettvangi Íslandsstofu sameinast starfsemi Útflutningsráðs, Fjárfestingarstofu og erlent markaðsstarf Ferðamálastofu. Íslandsstofu verður ætlað víðtækt starf sem snýr m.a. að því að styrkja ímynd og orðspor Íslands og styðja við kynningu á íslenskri menningu erlendis.
Íslandsstofa er aðili að Enterprise Europe Network sem er stuðningsnet ESB fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Fjárfestingarstofan er rekin á grundvelli samstarfssamnings Íslandsstofu og iðnaðarráðuneytisins og hefur aðsetur á skrifstofu Íslandsstofu.
Íslandsstofa er jafnframt með samstarfssamningi aðili að ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar ásamt Samtóni og með stuðningi þriggja ráðuneyta, þ.e. mennta- og menningarmálaráðuneytis, utanríkisráðuneytis og iðnaðarráðuneytis. Skrifstofa ÚTÓN er hjá Íslandsstofu.





