Fjárfestingarstofan
Fjárfestingarstofan – Invest in Iceland Agency – hefur það hlutverk að laða til landsins erlenda fjárfesta, í því skyni að auka fjölbreytni atvinnulífsins. Hún miðlar upplýsingum til erlendra fjárfesta og kemur þeim í samband við viðeigandi aðila á Íslandi, hefur frumkvæði að samkeppnisgreiningu einstakra atvinnugreina, fylgist með rannsóknum, þróun og nýjum tækifærum og veitir stjórnvöldum og atvinnulífi ráðgjöf. Einnig sér Fjárfestingarstofan um verkefnið Film in Iceland, www.filminiceland.com.
Fjárfestingarstofan er rekin af Útflutningsráði og iðnaðarráðuneytinu og hefur aðsetur á skrifstofu Útflutningsráðs.
Nánari upplýsingar veita
Þórður H. Hilmarsson forstöðumaður, thordur@invest.is
Einar Hansen Tómasson verkefnisstjóri, einar@invest.is
Kristinn Hafliðason verkefnisstjóri, kristinn@invest.is
Vefsíða Fjárfestingarstofunnar: www.invest.is





