Samstarf í Færeyjum - tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki
13.11.2009
Eftirtalin færeysk fyrirtæki vilja komast í samband við íslensk fyrirtæki með samstarf í huga:
Teymavirkið
www.teymavirkid.fo
Fyrirtækið framleiðir vinnuföt, ásamt krókum og línum fyrir skip og báta.
Sansir
www.sansir.fo
Markaðs- og auglýsingastofa sem getur aðstoðað íslensk fyrirtæki við markaðssetningu í Færeyjum.
Estra Vasti
www.estra.fo
Offset prentsmiðja sem prentar allt efni, býður þjónustu sína til íslenskra fyrirtækja. Vakin er athygli á því að allt kynningarefni í Færeyjum þarf að vera á færeysku.
Cre8
www.cre8.fo
Fyrirtækið er hönnunar – og markaðsfyrirtæki sem hannar kynningarefni fyrir fyrirtæki. Fyrirtækið hefur einnig skipulagt LIVA daginn, sem helgaður er konum og haldinn árlega. Fyrirtækið vill komast í samband við áhugaverð fyrirtæki og eða einstaklinga sem þurfa aðstoð við markaðssetningu á vörum eða þjónustu í Færeyjum, sem og konum sem hefðu áhuga á þátttöku í LIVA deginum.
ASB
www.asb.fo
Fyrirtækið vill ræða við íslensk fyrirtæki sem áhuga hafa á mögulegri olíuvinnslu og kynna möguleikann á birgða- eða starfsstöð í Færeyjum.
JT Electric
www.jt.fo
Fyrirtækið framleiðir ljós fyrir fiskeldisstöðvar og myndavélar fyrir troll.
El Talvuvirkið
www.etv.fo
Fyrirtækið framleiðir rafmagnskassa í skip og fyrir annað iðnað.
Nánari upplýsingar veitir Elsa Einarsdóttir, elsa@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.
Útflutningsráði berst töluvert af fyrirspurnum erlendis frá, bæði í tölvupósti og bréfleiðis,
auk þess sem starfsmenn Útflutningsráðs fá jafnan margvíslegar spurningar á vörusýningum erlendis.
Nokkuð berst einnig af óskum um samstarf við íslensk fyrirtæki í gagnagrunn Business Cooperation
Database sem starfræktur er af Enterprise Europe Network. Þar geta íslensk fyrirtæki einnig komið á framfæri
samstarfsóskum við fyrirtæki erlendis.
Nánari upplýsingar um Business Cooperation Database veitir Erna Björnsdóttir,
erna@utflutningsrad.is





