ÚTÓN
Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar, ÚTÓN, var stofnuð 23. nóvember 2006. Með stofnun skrifstofunnar er komið á fót þjónustu- og upplýsingamiðstöð fyrir tónlistargeirann í víðum skilningi og á sambærilegan hátt við það sem þekkist hjá Norðurlöndunum. Verkefni Útflutningsskrifstofu er m.a. að byggja upp stoðkerfi íslenskra tónlistarmanna sem leita frama á alþjóðavettvangi, jafnframt því að stuðla að kynningu á íslenskri tónlist á alþjóðlegum tónlistarráðstefnum og mörkuðum.
Stofnaðilar ÚTÓN eru Samtónn (samtök tónlistarrétthafa), Landsbanki Íslands og Útflutningsráð Íslands, en auk fjárframlaga frá stofnaðilum leggja utanríkisráðuneyti, menntamálaráðuneyti og iðnaðarráðuneyti til fjárframlög til reksturs Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar.
Skrifstofan er til húsa hjá Útflutningsráði Íslands að Borgartúni 35, Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar:
Anna Hildur Hildibrandsdóttir
framkvæmdastjóri ÚTÓN
anna@icelandmusic.is
sími 824 4371
www.icelandmusic.is.





