Viðskiptasendinefndir 2010
Viðskiptasendinefndir opna íslenskum fyrirtækjum dyr að nýjum mörkuðum. Íslandsstofa skipuleggur fjölda slíkra ferða á ári hverju, á nágrannamarkaði en einnig á fjarlægar slóðir.
Markmið viðskiptasendinefnda er að leita viðskiptatækifæra, efla tengslin við fyrirtæki og koma á nýjum samböndum erlendis. Viðskiptasendinefndir gegna þannig mikilvægu hlutverki í sókn íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði og hafa skilað þeim góðum árangri, s.s. fyrirtækjum í orkuiðnaði, ferðaþjónustu, sjávarútvegi eða á sviði fjárfestinga.
Mismunandi áherslur
Viðskiptasendinefndir eru skipulagðar með mismunandi hætti, eftir því hverjar áherslur eru, en þátttakendur eru fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
Könnunarferðir
Viðskiptasendinefndir funda með fyrirtækjum, stofnunum, bönkum, ráðgjafafyrirtækjum og öðrum aðilum sem veitt geta upplýsingar um viðskiptaumhverfið og tækifæri á markaði. Markmiðið er að kanna aðstæður og stuðla að tengslum.
Fundaferðir
Heimsóknir viðskiptasendinefnda byggja á fyrirfram skipulögðum fundum, þar sem höfuðáhersla er lögð á að mæta óskum og þörfum hvers fyrirtækis. Unnið er í nánu samstarfi við erlenda sérfræðinga á viðkomandi markaði.
Vegsaukaferðir
Efnt er til ferða viðskiptasendinefnda í tengslum við opinberar heimsóknir íslenskra ráðamanna. Fyrirtæki njóta góðs af jákvæðri athygli sem fulltrúar Íslands vekja, t.d. í opinberum móttökum, við undirritun samninga eða með þátttöku í ráðstefnum.
Viðburðaferðir
Heimsóknir viðskiptasendinefnda eru skipulagðar í tengslum við ráðstefnur, sýningar eða álíka viðburði ytra. Áhersla er lögð á að koma á viðskiptasamböndum.
---- ----
Fyrirhugaðar viðskiptasendinefndir 2010
14. og 15. maí - Ársfundur EBRD.
Fundurinn er haldinn í Zagreb og er kjörið tækifæri til að komast í samband við alla helstu þátttakendur í uppbyggingu atvinnulífs í A-Evrópu. Boðið er upp á fundarbókanir þar sem fyrirtæki geta mælt sér mót við forsvarsmenn bankans og einnig fulltrúa þeirra 30 landa sem eru á starfssvæði hans. Auk þess eru yfirgripsmiklar kynningar á þeim verkefnum sem eru í gangi í þessum löndum. Þetta er kjörinn vettvangur fyrir alla í ráðgjafarþjónustu, hönnun, o.fl.
15. og 17. júní. - Ferðaþjónusta í Kína
15. júní í Peking og 17. júní í Sjanghæ verða haldnar Íslandskynningar og skipulagðir viðskiptafundir meðal ferðaþjónustufyrirtækja. Iðnaðarráðherra Katrín Júlíusdóttir leiðir sendinefndina sem lýkur með heimsókn á EXPO heimssýninguna þar sem haldin verður móttaka fyrir alla þátttakendur á fundunum.
11. september - Þjóðardagur á EXPO
Forseti Íslands heimsækir heimsýninguna í Shanghai þar sem haldið verður málþing um orkumál og hönnun. Fulltrúar allra helstu fyrirtækja í þeim geirum verða á staðnum og kynna starfsemi sinna fyrirtækja.
20.-24. september. Ferðaþjónusta til Kanada
Áformuð er vinnustofa (Workshop) í fjórum borgum Kanada; Halifax, Toronto, Winnipeg og Vancouver. Verkefnið er unnið í samvinnu við Ferðamálaráð Grænlands.
20.-22. september - Fjárfestingarþing í Socchi.
Kuban fjárfestingarþingið er haldið í borginni Socchi við Svartahafið. Krasnodar héraðið er eitt fárra svæða þar sem vinnanlegur jarðhiti er í Rússlandi og gefur það tækifæri á að koma slíkri tækni á framfæri. Einnig er mikil þörf á endurnýjun orkudreifikerfis héraðsins. Vetrarólympíuleikarnir verða haldnir þar 2014 og mikil uppbygging því í gangi.
4.-7. október. Geothermal Research Council Meeting í Reno Nevada
24.-27. október. Aðalfundur Geothermal Research Council haldinn í Sacramento í Kaliforníu.
13.-19. nóvember. Ferðaþjónusta til USA
Fundarferð um austurströnd Bandaríkjanna með viðkomu í Equine Affair sýningunni í Springfield.
Sendinefnum sem lokið er á árinu :
Í tilefni af opinberri heimsókn forseta Íslands til Indlands skipulagði Útflutningsráð ferð viðskiptasendinefndar dagana 12.-17. janúar. Sjá frétt hér
World Renewable Energy Summit í Abu Dhabi dagana 18.-21. janúar
Vinnufundur í ferðaþjónustu í Moskvu 24.-26 janúar í beinu framhaldi af Matka sýningunni í Helskinki sem haldin er dagana 21. til 24 janúar. Sjá nánar hér.
Íslandsdagur í Mílanó 26. febrúar
Borgarstjóri Mílanóborgar bauð til Íslandsdags föstudaginn 26. febrúar 2010. Kristján L. Möller, samgöngu og sveitarstjórnarmálaráðherra, leiddi sendinefnd fyrirtækja til borgarinnar.
Á dagskrá voru kynningar á samskiptum landanna og á íslenskri hönnun og nýsköpun. Jafnframt viðskiptafundir sem Útflutningsráð skipulagði bæði með sérstaka áherslu á ferðaþjónustu á sviði funda og málþing sem utanríkisráðuneytið stóð fyrir, auk þess sem skapað var tækifæri fyrir þau fyrirtæki sem eru áhugasöm að hasla sér völl á ítalska markaðnum, að koma sér á framfæri og var fundað með líklegum samstarfsaðilum. Sjá frétt hér
Nánari upplýsingar:
Þorleifur Þór Jónsson forstöðumaður, thorleifur@islandsstofa.is





