Útflutningsráð
Á vefsíðunni International Trade Center hægt að nálgast tengingar á vefsíður útflutningsráða, eða fyrirtækja með hliðstæða þjónustu, víðsvegar um heim.
Fjárfestingarstofur
Á vefsíðunni IPAWorld.com er hægt að nálgast tengingar á fjárfestingarstofur víðsvegar um heim. Hjá fjárfestingarstofum fást upplýsingar um rekstrarumhverfi fyrirtækja, en Fjárfestingarstofan á Íslandi gefur upplýsingar um rekstrarumhverfi á Íslandi auk þess að vinna markvisst að því að kynna möguleika erlendra aðila til fjárfestingar hér á landi.
Sendiskrifstofur
Á vef utanríkisráðuneytisins er hægt að nálgast upplýsingar um sendiráð, ræðisskrifstofur og fastanefndir.
Alþjóða verslunarráðið
Alþjóða verslunarráðið (ICC) leggur áherslu á hindrunarlaus milliríkjaviðskipti. Landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins er tengiliður íslensks atvinnulífs við Alþjóða verslunarráðið.
Viðskiptaráð
Á vefsíðunni World Chambers Network er hægt að nálgast tengingar á vefsíður Viðskiptaráða víðsvegar um heim. Vefsíða Viðskiptaráðs Íslands er www.chamber.is.





