Iceland Trade Directory
Útflytjendahandbókin, Iceland Trade Directory, er gefin út af Heimi ehf. í samstarfi við Íslandsstofu. Bókin kemur út árlega en einnig er að finna vefútgáfu hennar á www.icetradedirectory.com.
Útflytjendahandbókinni er dreift á vegum Íslandsstofu, Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins, Samtaka iðnaðarins og Viðskiptaráðs Íslands, bæði hérlendis og erlendis, t.d. á sýningum, til ræðismanna og sendiráða, útflutnings- og verslunarráða, í viðskiptaheimsóknum og til fjölda alþjóðlegra fyrirtækja.
Handbókina má nálgast á skrifstofu Íslandsstofu að Borgartúni 35, Reykjavík, sími 511 4000 eða með því að senda tölvupóst á islandsstofa@islandsstofa.is
Bókin er einnig fáanleg hjá Útgáfufélaginu Heimi að Borgartúni 23, sími 512 7575, netfang: icelandexport@icelandexport.is og þar er jafnframt hægt að skrá sig í bókina og vefútgáfuna.





