Undirbúningur er hafinn fyrir sjávarútvegssýninguna China Fisheries & Seafood Expo sem verður haldin 2.–4. nóvember í Dalían. Þetta er í 15. sinn sem sýningin er haldin og er ein stærsta sýning sinnar tegundar í Asíu og fer stækkandi milli ára.
Sýningin er m.a. ætluð fyrirtækjum í sjávarafurðum,tækni-og tækjabúnaði og ýmissi þjónustu við sjávarútveginn. Einnig er hluti sýningarinnar tileinkað fiskeldi. Sýnendur koma frá um 30 löndum og gestir sem eru yfir 15.000 koma frá um 50 löndum. Dalían er ein af framsæknustu borgum í Kína og ein af tveimur stærstu borgunum í innflutningi á sjávarafurðum. Í Dalían og nærliggjandi borgum eru yfir 500 fiskvinnslur sem eru ISO og HACCP vottaðar.
Nánari upplýsingar veita Berglind Steindórsdóttir, berglind@islandsstofa.is eða Aðalsteinn Haukur Sverrisson, adalsteinn@islandsstofa.is, sími 511 4000.
Einnig eru frekari upplýsingar um sýninguna hér: www.chinaseafoodexpo.com





