Íslandsstofa hefur unnið að uppbyggingu á ferðatengdri þjónustu við fuglaskoðara. Í framhaldi af þeirri vinnu fóru fyrirtæki á sýninguna Birdfair í Rutland í ágúst 2009. Sýningarþátttaka tókst með ágætum og höfum við áhuga á að endurtaka leikinn og fengið úthlutaðan 18m2 bás á Birdfair sýningunni. Um 300 sýnendur taka þátt víða að úr heiminum og rúmlega 20.000 manns sækja sýninguna heim.
Áhugasamir um þátttöku eða nánari upplýsingar er bent á að hafa samband við Berglindi Steindórsdóttur, berglind@islandsstofa.is eða Björn H. Reynisson, bjorn@islandsstofa.is .
Mikilvægt er að þeir sem taka þátt í sýningunni séu tilbúnir í sölu á þjónustu við fuglaskoðara.
Þátttökukostnaður fyrir hvert fyrirtæki er 25.000 kr.
Tekið skal fram að þar sem sýningarbásinn er ekki stór þurfum við að takmarka fjölda sýnenda og því er reiknað með að velja þurfi úr hópi umsækjenda ef margar umsóknir berast.
Umsóknareyðublað má nálgast hér
Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á vefsíðunni: www.birdfair.org.uk.





