Fyrirtækjum í ferðaþjónustu býðst nú einstakt tækifæri til að kynna Ísland sem áfangastað fyrir kínverska ferðamenn. Útflutningsráð Íslands undirbýr ferð viðskiptasendinefndar ferðaþjónustufyrirtækja til Kína, dagana 15.–22. júní. Ferðin verður farin í tengslum við Heimssýninguna Expo 2010 í Sjanghæ.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mun leiða sendinefndina.
Útflutningsráð skipuleggur Íslandskynningar og vinnufundi þar sem fundað verður með kínverskum ferðaþjónustuaðilum Sjanghæ 17. júní og í Peking 21. júní.
Ferðaþjónustufyrirtæki sem hafa áhuga á að laða að kínverska ferðamenn og efla eða hefja samstarf við kínverska ferðaþjónustuaðila eru hvött til að slást með í för.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.





